orð dómsmálaráðherra í útvarpsviðtali.
Frú forseti. Hæstv. dómsmálaráðherra virðist hafa vaknað eitthvað afundin í gærmorgun og mætti í viðtal á Sprengisandi Bylgjunnar og lýsti því þar að stjórnarandstaðan hefði þvælst fyrir því að mál hæstv. ráðherra kæmust hér til umræðu. Mig langar til að beina því til hæstv. forseta að það er auðvitað forseti sem hefur dagskrárvaldið og ef slík samtöl hafa ekki átt sér stað þá er nauðsynlegt að virðulegur forseti og hæstv. dómsmálaráðherra ræði um þá gagnrýni sem dómsmálaráðherra setur fram á fundarstjórn forseta. Frá því að málin tvö sem vísað var til voru afgreidd úr nefnd 8. apríl liðu 36 dagar þangað til þau poppuðu fyrst upp á dagskrá þingsins og þá aftast og næstaftast. Það hefur verið staðan. Þangað til í dag eru málin nr. 23 og 24. Þetta er nú öll áhersla ríkisstjórnarinnar á þessi mál hæstv. dómsmálaráðherra. Þannig að ég vil beina því til virðulegs forseta að ræða skipulag þingfunda, röð mála og forgangsröðun ríkisstjórnarinnar við ráðherra ríkisstjórnarinnar því að það er auðvitað ekki (Forseti hringir.) tækt að kenna okkur í stjórnarandstöðu um að þessi mikilvægu mál hæstv. dómsmálaráðherra séu aftast á merinni í skipulagningu þingsins.