orð dómsmálaráðherra í útvarspviðtali.
Frú forseti. Aðeins meira af því sem hv. þm. Bergþór Ólason vék hér að, sem eru útskýringar hæstv. dómsmálaráðherra á störfum hér í þinginu. Hv. þm. Bergþór Ólason fór yfir ákveðnar dagsetningar sem eru lykilatriði í málinu. Mál sem hún kvartar undan að hér komist ekki á dagskrá komu til kynningar í nefnd þann 8. apríl og svo líða 36 dagar. Og hver er forgangsröðunin? Hver er með dagskrárvaldið? Jú, það er ríkisstjórnin, og hver er forgangsröðunin? Hún er sú að geyma þetta mál í 36 daga á meðan þeir leggja fram umræður um hunda- og kattahald. Það er forgangsröðun þessarar ríkisstjórnar.