156. löggjafarþing — 49. fundur,  26. maí 2025.

orð dómsmálaráðherra í útvarspviðtali.

[15:07]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Hæstv. dómsmálaráðherra hefur, eftir það óþurftarverk sitt að reka lögreglustjórann á Suðurnesjum úr starfi, hreinlega ærst og efnt til flugeldasýningar, aðallega um Miðflokkinn. Telur hún það vera Miðflokknum helst að kenna að litlu frumvörpin hennar um útlendinga og landamærin hafi ekki verið afgreidd hér á þinginu. Gleymir hún þá auðvitað því að dagskrárvald þingsins er í höndum stjórnarmeirihlutans og þessi frumvörp hafa síðustu tvær vikur verið aftast á dagskrá þingsins. Miðflokkurinn mun ekki standa í vegi fyrir að þessi frumvörp hæstv. dómsmálaráðherra fari greiðlega í gegn.