156. löggjafarþing — 49. fundur,  26. maí 2025.

orð dómsmálaráðherra í útvarspviðtali.

[15:08]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Ég verð að gera athugasemd við forgangsröðun hæstv. forseta sem auðvitað forgangsraðar í nafni ríkisstjórnarinnar, stjórnarmeirihlutans hér á þingi, og gerir það á afskaplega sérkennilegan hátt. Það er eins og þessi ríkisstjórn sé ekki í neinum tengslum við raunveruleikann, við það sem er að gerast í samfélaginu. Aðkallandi mál, eins og það sem hér hefur verið nefnt, útlendingamálin, komast ekki að hjá hæstv. ríkisstjórn. Í staðinn er lögð áhersla á nánast allt annað, alla vega meiri áhersla en á þessi mál, að því marki að hér var meira að segja gert hlé á þingfundi til að halda aukanefndarfund í sánunni hérna skammt frá til að koma út máli um hunda- og kattahald og koma því áfram í ferlinu. Það er meira forgangsatriði. Og raunar, eins og ég segi, eru flestöll mál þessarar ríkisstjórnar meira forgangsatriði en að taka á því ófremdarástandi sem hér ríkir á landamærunum og stöðu útlendingamála.