156. löggjafarþing — 49. fundur,  26. maí 2025.

orð dómsmálaráðherra í útvarspviðtali.

[15:10]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Það kom mér ekkert á óvart málflutningur hæstv. dómsmálaráðherra um helgina svona utan dagskrár þar sem hún fjallaði um dagskrárvaldið hér og dagskrá þingsins. Sá málflutningur er algerlega í stíl við þann málflutning sem hún hefur viðhaft hér í þingsal, sem hefur verið ákaflega ómálefnalegur í garð þingmanna, a.m.k. þingmanna Miðflokksins sem hafa fært til og hvatt til málefnalegra umræðu, m.a. um dagskrárliðinn óundirbúnar fyrirspurnir. Slíkum spurningum hefur verið svarað með útúrsnúningi og skætingi og engin málefnaleg umræða hefur farið fram um nokkurn skapaðan hlut sem að henni hefur verið vikið hér í óundirbúnum fyrirspurnum. Það kom mér þannig ekki á óvart að hún hnýti í Miðflokkinn sérstaklega fyrir að standa í vegi afgreiðslu mála sem hafa brunnið á Miðflokknum og þingmönnum Miðflokksins um árabil, sem eru málefni landamæra, landamæravörslu og löggæslu á landamærum og málefni útlendinga. Það stendur ekki á Miðflokknum eða þingmönnum Miðflokksins að afgreiða þessi mál og ég hvet forseta Alþingis til þess að liðka fyrir afgreiðslu þessara mála sem hafa beðið í neðsta sæti í margar vikur.