156. löggjafarþing — 49. fundur,  26. maí 2025.

orð dómsmálaráðherra í útvarspviðtali.

[15:11]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég held að þetta sé að dragast ágætlega hérna upp. Við vitum öll að dagskrárvaldið er hjá ríkisstjórninni. Ef það er vilji ríkisstjórnarinnar, eins og má ráða af viðtölum og öðru slíku, að setja í forgang mál sem tengjast landamæravörslu og öðru slíku sem hér hefur verið nefnt þá er ríkisstjórnin með stuðning frá stjórnarandstöðunni til að setja það í forgang. Núna skulum við fylgjast með hvort einhver hugur er á bak við þennan pirringslega málflutning ríkisstjórnarflokkanna. Munu ráðherrar koma hér upp og segja: Heyrðu, gott að heyra þennan stuðning, við ætlum að setja þetta í forgang?

Ríkisstjórnin hefur sett þetta aftast. Ríkisstjórnin getur sett þetta fremst. Núna er spurningin: Var þetta bara eitthvert þvaður út í loftið eða hefur ríkisstjórnin í alvöruáhuga á því að setja þessi mál í forgang? Hún hefur stuðning stjórnarandstöðunnar og ég bara hlakka til að sjá ráðherra ríkisstjórnarinnar koma hérna fram (Forseti hringir.) og segja að þau ætli að endurraða þessari dagskrá.