orð dómsmálaráðherra í útvarspviðtali.
Virðulegur forseti. Ég verð að segja að það var í rauninni ótrúlegt að hlusta á furðulegar söguskýringar hæstv. dómsmálaráðherra núna um helgina, sérstaklega í Sprengisandi. Ég veit ekki hvort hæstv. dómsmálaráðherra áttar sig ekki á því hver er með dagskrárvaldið hér á þingi. Það er ekki minni hlutinn, það er meiri hlutinn. Þegar mál hefur verið afgreitt úr nefnd fyrir 36 dögum þá er það náttúrlega stjórnarmeirihlutanum í sjálfsvald sett að setja þetta mál ofar á dagskrá. Það mun ekki standa á minni hlutanum að afgreiða þessi mál héðan frá þingi þannig að það sé sagt. Síðan þegar hæstv. ráðherra talar um að tiltekinn stjórnmálaflokkur ærist þá vísa ég því bara til föðurhúsanna. Ég veit ekki hver er að ærast. Það er ekki Miðflokkurinn.