156. löggjafarþing — 49. fundur,  26. maí 2025.

orð dómsmálaráðherra í útvarpsviðtali.

[15:14]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Frú forseti. Ég veit að það er mánudagur en voðalega eru Miðflokksmenn litlir í sér í dag. Það er eins og menn séu mættir hérna í einhverja mjúka aðlögun og það sé eitthvert reiðarslag að dómsmálaráðherra sé að ræða pólitík. Hvað er eiginlega vandamálið? Ég benti bara á tafaleikina hér inni í þingsal sem hafa blasað við þjóðinni allri vikum saman, það var allt og sumt. Það var allt og sumt. Enginn Miðflokksmaður er á áliti þessa máls, það eru fulltrúar allra annarra flokka eftir því sem ég best fæ séð. Það væri auðvitað gaman að heyra Miðflokkinn lýsa því þá hér yfir að þeir ætli sér að styðja þetta mál og sýna það í verki. Þetta kannski kallast á við það að enginn þingmaður Miðflokksins mætti heldur í umræðu um frumvarp mitt um útlendingamál. Það hefur kannski verið erfiður mánudagur þá líka. Ég er bara að benda á það sem öll þjóðin sér: vonlausa tafaleiki hérna sem bitna á mikilvægum málum. Auðvitað hefur Sjálfstæðisflokkurinn tekið þátt í þessu líka undir forystu Miðflokks hérna í stjórnarandstöðunni. Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið í þessu hlutverki líka. En batnandi mönnum er best að lifa og ég segi bara: Áfram gakk. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)