156. löggjafarþing — 49. fundur,  26. maí 2025.

orð dómsmálaráðherra í útvarpsviðtali.

[15:15]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Frú forseti. Hæstv. dómsmálaráðherra er enn undir áhrifum frá aðstoðarmanni sínum. Þetta er eins og einhver brandari sem kemur hér fram hjá henni vegna þess í fyrsta lagi að þá kemur hæstv. dómsmálaráðherra og segir að Miðflokkurinn styðji ekki hagræðingartillögur. Þetta er algerlega úr lausu lofti gripið. Ég hef bara stutt allar hagræðingartillögur sem hafa komið — eða myndi styðja, fyrirgefið, þær hafa ekki komið fram, hagræðingartillögurnar hafa ekki komið fram. Svo kemur hæstv. dómsmálaráðherra og segir að við komum ekki í umræður um útlendingamál. Öll þjóðin veit hvar Miðflokkurinn stendur í útlendingamálum. Við þurfum ekki að vera klappstýrur fyrir hæstv. dómsmálaráðherra í þeim efnum og ég get róað hæstv. dómsmálaráðherra með því að Miðflokkurinn allur styður útlendingamálin sem eru vonandi að fara að komast á dagskrá. En auðvitað myndi Miðflokkurinn vilja ganga lengra.