orð dómsmálaráðherra í útvarpsviðtali.
Virðulegi forseti. Já, hún kemur manni á óvart, forgangsröðunin hér. Hér er líka mál sem var tilbúið fyrir hæstv. ríkisstjórn að leggja fram og því augljóst að það fengi hraða umfjöllun eins og mörg önnur mál hafa fengið.
Virðulegur forseti. Ég sakna líka annarra mála sem höfðu verið í undirbúningi í dómsmálaráðuneytinu og dómsmálaráðherra er byrjuð að boða hér, en nú er heilt lögregluembætti að bíða eftir því hvaða breytingar verði gerðar. Af hverju koma þau mál ekki strax hér inn? Það er bara lítið brot af útlendingamálum, landamæramálunum, sem birtist í landamæraáætlun sem síðasta ríkisstjórn gaf út og ég kalla eftir þeim málum hér fyrst inn af því að hér er verið að boða það, virðulegur forseti, að breyta lögum en svo kemur það ekkert hér á dagskrá. Það er ríkisstjórnin sem er með dagskrárvaldið hér, svo það sé á hreinu.