156. löggjafarþing — 49. fundur,  26. maí 2025.

orð dómsmálaráðherra í útvarpsviðtali.

[15:17]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Það er í sjálfu sér mikið fagnaðarefni að heyra það hér að þingmenn Miðflokksins, allir sem einn, vilji greiða fyrir þingstörfum. En það virðist einhver misskilningur hvernig menn gera það því að það er ekki gert með því að heill þingflokkur komi hér upp og ræði það sem fram fór í fjölmiðlum. Það er engin umræða um fundarstjórn forseta nema að litlu leyti. Það er ekki heldur gert með því að halda hér langar ræður, m.a. um viðskiptasamning við Taíland, og vera ekki á málum sem efla landamærin og tefja það síðan með langri umræðu, þvælinni umræðu, að góð mál nái í gegn, t.d. leigubílamálin. En ég fagna því að það sé einhver von um sinnaskipti hér og breytt vinnubrögð þannig að menn láti núna málefnin ráða og að Framsóknarflokkurinn sé ekki eini stjórnarandstöðuflokkurinn sem verði með málefnalega andstöðu og góðar tillögur en að það verði einhver breyting á vinnubrögðum stjórnarandstöðunnar og þá á ég við einkum vinnubrögð Sjálfstæðisflokks og Miðflokks.