156. löggjafarþing — 49. fundur,  26. maí 2025.

orð dómsmálaráðherra í útvarpsviðtali.

[15:19]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Það er hálfgrátlegt, með fullri virðingu, hjá hæstv. dómsmálaráðherra að láta eins og andstaða Miðflokksins ráði för í því að útlendingamál komist ekki hér á dagskrá. Það hefur engin andstaða mælst, hvorki í nefnd né hérna í þingsal, þannig að ég veit ekki alveg hvað er að gerast á stjórnarheimilinu sem er hins vegar að koma í veg fyrir það. Maður veltir fyrir sér hvort það sé eitthvað. Sömuleiðis vangaveltur hæstv. dómsmálaráðherra um ásetning okkar Miðflokksmanna, að við séum svo hræddir við að missa þá sérstöðu sem við sannarlega höfum að hafa verið samkvæmir sjálfum okkur í útlendingamálum lengi og lengst allra flokka hér, að við séum svo hræddir við að missa þá sérstöðu að við viljum ekki að málin komist í gegn.

Mögulega ólíkt hæstv. dómsmálaráðherra þá erum við hérna að starfa að hag þjóðarinnar en ekki hag flokksins okkar. Og ég velti fyrir mér ef menn geta yfirleitt ímyndað sér svona annarlegan ásetning í þingstörfum, hvort þeir séu haldnir honum sjálfum. Óttast menn Miðflokkinn þannig að þeir vilji koma með þessi litlu útlendingamál? Býr ekki meira að baki en það? Er það ásetningur dómsmálaráðherra út frá því að hæstv. dómsmálaráðherra gengur út frá því að ásetningur annarra flokka sé svona afskaplega (Forseti hringir.) vafasamur? Þetta er grátlegt, með fullri virðingu.