orð dómsmálaráðherra í útvarpsviðtali.
Virðulegi forseti. Það er ánægjulegt og áhugavert að fulltrúar Miðflokks og Sjálfstæðisflokks séu að vakna upp við það á þessum mánudegi að þeir tafaleikir sem þeir hafa stundað síðastliðnar vikur séu að þvælast fyrir þjóðþrifamálum í þinginu. Það er sjálfsagt af hálfu meiri hlutans að bregðast við þessu til að reyna að liðka fyrir dagskrá og reyna að koma þingstörfum hraðar í gegn. (Gripið fram í.) Ég verð að viðurkenna að það hefði verið ánægjulegt, líkt og á öðrum fundum sem er vísað til, ef athugasemdir hefðu borist á fundum sem við eigum sameiginlega þar sem farið er yfir dagskrá vikunnar og jafnvel hefði verið hægt að gera einhverjar breytingar á dagskránni. En það er bara spurning hvort við setjumst niður eftir atkvæðagreiðslu seinna í dag og ræðum dagskrá þingfundarins í dag og förum yfir þetta mál, því að það er svo sannarlega okkar vilji að þingstörf gangi vel og í góðri sátt meiri og minni hluta. Ánægjulegt ef fulltrúar minni hlutans eru tilbúnir í það verkefni með okkur. En við skulum ekki fara í grafgötur með það að hér hefur verið slegið hvert Íslandsmetið á fætur öðru í löngum umræðum, jafnvel um mál sem við erum öll sammála um, eins og lengsta umræða um fríverslunarsamning í sögu Alþingis sem allir enduðu svo á að greiða atkvæði með. (Gripið fram í.)