156. löggjafarþing — 49. fundur,  26. maí 2025.

orð dómsmálaráðherra í útvarpsviðtali.

[15:23]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Já, ég verð að taka undir það að ummæli forystufólks ríkisstjórnarinnar um helgina, um þessi mál og vinnubrögð á þinginu, komu manni óneitanlega mjög á óvart, ekki síst í ljósi þess að umrædd mál, útlendingamálin, ég held að það séu flestir í samfélaginu okkar sammála því að það séu brýnustu málin í dag til að ræða. Það eru brýnustu málin og snerta svo marga málaflokka og margt sem viðkemur okkar samfélagi í dag. Og að vera að búa til sviðsmynd í kringum það og setja upp leikrit um að hér hafi allt of miklum tíma verið eytt í önnur mál undanfarnar vikur — ég veit ekki betur en að útlendingamálin hafi verið á þingmálaskránni en ekki t.d. frumvarpið um veiðigjöldin, þannig að dagskrárvaldið er algerlega þarna. Það læðist að manni sá grunur að það hafi legið svona mikið á því að hækka frekar skatta, (Forseti hringir.) að drífa veiðigjaldafrumvarpið í gegn og láta útlendingamálin vera aftar á dagskránni, (Forseti hringir.) að þarna sé áherslur ríkisstjórnarinnar svo sannarlega að finna; (Forseti hringir.) að hækka skatta er mikilvægara en að ræða þau brýnu mál sem snerta útlendingamálin.

(Forseti (BHar): Forseti minnir hv. þingmenn aftur á tímamörkin.)