156. löggjafarþing — 49. fundur,  26. maí 2025.

orð dómsmálaráðherra í útvarpsviðtali.

[15:25]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. Mér brá nú bara áðan, frú forseti, þegar hv. þm. Sigurjón Þórðarson fór að hrósa Framsóknarflokknum, réttilega. En hann hélt það ekki út í eina mínútu, þá var hann byrjaður að skamma hann. [Hlátur í þingsal.] Ég kom ekki hingað upp til þess að blanda mér í deilur hæstv. dómsmálaráðherra og Miðflokksins. Hins vegar er þessi umræða sérkennileg og ég tek undir tillögu hv. þm. Bergþórs Ólasonar um að raða öðruvísi á dagskrá. Þar eru fjölmörg mál, þar á meðal þessi sem við í Framsókn styðjum og ég held meira og minna allur þingheimur. Það eru fjölmörg önnur mál sem horfa til heilla sem væri hægt að setja á dagskrá og klára í þinginu. Að kenna okkur um einhverja tafaleiki í því er fráleitt því það vita jú allir að dagskrárvaldið er í höndum forseta með leiðbeiningum frá meiri hluta. Það er meiri hlutinn sem ræður för. Ég vil bara hvetja forseta til að hlusta á þessa ágætistillögu og setja þau mál á dagskrá, sem eru fjölmörg, sem við getum stutt og klárað á skynsamlegum tíma áður en þingi lýkur.

Síðan eru auðvitað verkefni sem heyra undir dómsmálaráðherra og það er sérkennilegt að við skulum vera að tala hér í fundarstjórn forseta um form og reyna að kenna hvert öðru um tafaleiki þegar hér er hópur úti á Austurvelli sem kallar á einhverjar aðgerðir af hálfu dómsmálaráðherra og ríkisstjórnar.