156. löggjafarþing — 49. fundur,  26. maí 2025.

fjárframlög til stéttarfélaga.

[15:56]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Samkvæmt viðtali við hæstv. forsætisráðherra 14. maí sl. kemur fram að ríkisstjórnin hafi samþykkt viðbótarfjárauka á fundi sínum deginum áður þar sem ríkisstjórnin hyggst veita sérstök framlög til félagasamtaka, þar á meðal stéttarfélaga, svo að þau geti haldið uppi umræðu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um Evrópusambandið. Við erum því komin á þann stað að ríkisstjórnin ætlar að ausa peningum úr ríkissjóði í stéttarfélög og önnur samtök, mörg hver með milljarða í sínum sjóðum, til að halda uppi áróðri fyrir sínu helsta stefnumáli. Ef ríkisstjórnin væri að veita sömu fjármuni til atvinnurekendasamtaka til að tala gegn ESB-aðild, væri þá ekki litið á það sem pólitíska misnotkun? Hvers vegna er þetta ásættanlegt þegar sjónarmiðin falla að stefnu ríkisstjórnarinnar? Með þessu er verið að stíga yfir mörk sem eiga aðskilja stjórnmál og opinbera fjárveitingu. Þetta snýst ekki um skoðun á ESB heldur um að ríkisstjórnin nýti völd sín og opinbera fjármuni til að styðja við sín pólitísku markmið. Því spyr ég hæstv. utanríkisráðherra: Hvernig getur það talist forsvaranleg meðferð á opinberu fé að ríkisvaldið beiti fjármagni almennings til að styðja pólitíska umræðu sem beinlínis fellur að stefnu ríkisstjórnarinnar sjálfrar?