156. löggjafarþing — 49. fundur,  26. maí 2025.

fjárframlög til stéttarfélaga.

[16:00]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir svarið, en það er ekki hlutverk stjórnvalda að greiða fyrir rétt svar í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er hlutverk þeirra að standa utan við slaginn, ekki kosta hann. Fyrir liggur að ríkisstjórnin hefur nú þegar tekið afstöðu og það er erfitt að líta á þetta sem annað en fjármögnun á pólitískri herferð frá ríkisstjórn til þeirra sem eru henni sammála.

Hér talar hæstv. utanríkisráðherra um að tryggja þurfi lýðræðislega umræðu og því spyr ég: Mun Heimssýn einnig fá fjárstyrk frá ríkisstjórninni inn í þessa umræðu? Því að það er eitt að tryggja aðgengi að upplýsingum, það er allt annað að nota ríkisfjármál til að auglýsa eigin pólitísku hugðarefni. Því spyr ég hæstv. ráðherra aftur: Hver verður næsta umræða sem ríkisstjórnin ákveður að fjármagna? Verður fjármagn sett í umræðu fyrir næstu alþingiskosningar? Verða framlög veitt til að kynna kosti ríkisreksturs eða hátekjuskatta? Kannski hækkun veiðigjaldsins eða nýs og betra jafnlaunavottunarkerfis eða (Forseti hringir.) hvað sem Viðreisn kann að detta í hug? Og munu eingöngu samtök sem eru sammála ríkisstjórninni fá fjármagn eða líka þau (Forseti hringir.) sem eru mótfallin hennar stefnu?

Ég vil einnig spyrja hér hæstv. utanríkisráðherra: Hvar er þessi viðbótarfjárauki sem var samþykktur í ríkisstjórn (Forseti hringir.) 13. maí? Enginn virðist hafa séð hann.

(Forseti (BHar): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða ræðutímann sem er ein mínúta í síðari umferð.)