156. löggjafarþing — 49. fundur,  26. maí 2025.

utanríkisstefna Íslands.

[16:03]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Í síðastliðinni viku undirritaði hæstv. ráðherra samkomulag ásamt utanríkisráðherrum Liechtenstein og Noregs og utanríkismálastjóra Evrópusambandsins. Í því kom m.a. fram að Ísland hygðist laga utanríkisstefnu sína að stefnu Evrópusambandsins. Það var skýrt tekið fram að stefnan skyldi löguð að stefnu ESB er varðar yfirlýsingar og aðgerðir sambandsins. Eftir að þetta komst upp, ef svo má segja, því að ekki var sagt frá þessu í fréttatilkynningunni með fínu myndunum af fundinum, þá hefur verið fullyrt að þetta hafi í rauninni ekkert gildi, þetta hafi ekki lagalegt gildi, þetta sé ekki bindandi og breyti í engu möguleikum Íslands á að taka sjálfstæða afstöðu til nokkurs máls. Nú vil ég bara biðja hæstv. ráðherra að staðfesta það hér í ræðustól Alþingis að það sé skilningur hæstv. ráðherra að undirritun þessa samkomulags breyti í rauninni engu, sé kannski fyrst og fremst til að sýnast vera að gera meira í alþjóðasamstarfi, en þetta bindi okkur ekki á nokkurn hátt.

Jafnframt bið ég hæstv. ráðherra að staðfesta það að komi til tollastríðs milli Evrópusambandsins og Bandaríkjanna taki Ísland ekki þátt í því tollastríði, hvorki í liði með Bandaríkjunum, né í liði með Evrópusambandinu grípi það til einhvers konar refsiaðgerða gegn Bandaríkjunum.