utanríkisstefna Íslands.
Virðulegi forseti. Það sem hefur komið út úr þessu samtali, og yfirlýsingum Miðflokksins m.a., er að pólitískar yfirlýsingar þjóna engum tilgangi. Já, yfirlýsingin sem við undirrituðum var til þess að styrkja enn frekar samstarfið á sviði EES. Er eitthvað stórkostlega nýtt í henni? Nei, ekki öðruvísi heldur en það að við erum að tala okkur saman um það hvernig við getum enn frekar nýtt krafta okkar á þeim sviðum sem þegar eru nefnd í EES-samningnum. Ábyrgð stjórnarandstöðu úti um allan heim, ekki síst í Evrópuríkjum, er gríðarlega mikilvæg núna. Á þessum tímum þegar er verið að herja að friði, lýðræði, frelsi fólks og ríkja á þessu svæði þá skiptir líka máli hvernig stjórnarandstaðan kemur fram í þessum málum. Pólitískar yfirlýsingar þjóna tilgangi og þetta þýðir auðvitað að við, líkt þenkjandi ríki, ætlum að standa saman og við ætlum að gera hvað sem er til að verja einmitt lýðræði, frelsi og mannréttindi um allan heim. Með þessu samtali milli ESB-ríkjanna og EES-ríkjanna erum við að sýna fram á samstöðu Evrópu. Inn í þetta samtal koma líka fleiri ríki, eins og Noregur sem er utan ESB, (Forseti hringir.) eins og Bretland m.a. á öðrum stað sem er líka að semja við ESB um aukið samstarf um varnir, öryggi og fleira, (Forseti hringir.) til að draga fram einmitt þessa mikilvægu samstöðu sem felst í pólitískum yfirlýsingum. (Forseti hringir.) Ég er í pólitík og ég nota mín áhrif til að ýta undir að við getum tryggt frið og frelsi í okkar ástkæru Evrópu.