fyrirkomulag strandveiða.
Virðulegur forseti. Það er mikilvægt að halda því til haga að það eru þjónustuaðilar í kringum strandveiðina. Það þarf að landa fiskinum, það þarf að vigta hann, það þarf að flytja fiskinn og það þarf að vinna fiskinn. Á bak við þessi handtök eru fyrirtæki sem er stýrt af fólki sem verður að fá svör. Mun fiskur berast í vinnslurnar í júlí og ágúst? Þarf fiskmarkaðurinn á Dalvík sumarafleysingu í júlí og ágúst? Eiga vinnslurnar að haga sínum sumarleyfum öðruvísi nú en síðustu ár þegar búið er að lofa 48 dögum? Ég get sagt að vinnslurnar eru ekki að gera ráð fyrir því og hafa enga trú á því að það komi fiskur í vinnslurnar eftir 15. júlí nú frekar en áður. Miðað við þær tillögur sem hæstv. ráðherra hefur fyrir ríkisstjórninni á morgun, geta vinnslurnar gert ráð fyrir því að vera áfram og geta þá gert plön um að vera áfram með vinnslu eftir 15. júlí miðað við þær áætlanir og þær aðgerðir sem ráðherrann hefur í þessum efnum?