156. löggjafarþing — 49. fundur,  26. maí 2025.

fyrirkomulag strandveiða.

[16:16]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Herra forseti. Aftur þakka ég prýðilega fyrirspurn. Það liggur nú í hlutarins eðli að þær tillögur sem ég legg fyrir ríkisstjórn á morgun miða að því að tryggja nákvæmlega þessa þætti sem hv. þingmaður fer yfir og eru svo mikilvægir fyrir byggðafestu í landinu, atvinnu í landinu. Ég treysti því á góðan stuðning þingsins komi til kasta þess í þessu máli. Ég tel nú og hygg að við getum verið sammála um að það sé eðlileg leið að fara í gegnum ríkisstjórnina með þessi mál áður en ég upplýsi þingsal, þ.m.t. hv. þingmann, um nákvæmlega hverjar tillögurnar eru en það verður gert. Ég treysti því að þær verði samþykktar af kollegum mínum í ríkisstjórninni og að við munum ná í kjölfarið að tryggja þessa vinnu.