156. löggjafarþing — 49. fundur,  26. maí 2025.

orð dómsmálaráðherra í útvarpsviðtali.

[16:17]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Í umræðum um fundarstjórn forseta var fjallað nokkuð um tvískinnung og galgopalegan málflutning hæstv. dómsmálaráðherra þegar kemur að Miðflokknum og bent á ýmislegt sem ekki stenst í málflutningi hennar. Einu hjó ég eftir og gleymdi að minnast á í fundarstjórn forseta og það er þessi furðulega umkvörtun hennar um að það sé ýmist talað of mikið eða of lengi hér í málum og kvartað yfir því að þingmenn Miðflokksins hafi ekki verið við 1. umræðu í máli sem hún er með fyrir þinginu og varðar brottvísanir hælisleitenda. Það liggur nú í nefnd, búið að vera í hátt á sjöundu viku inni í nefnd, og er verið að afgreiða þar og vonandi afgreiðist það fljótt út hér.

Mig langar að spyrja — og ég vil náttúrlega leggja á það áherslu að þingmenn Miðflokksins hafa hvorki latt hæstv. dómsmálaráðherra né störf í hv. allsherjar- og menntamálanefnd sem fjalla um þessi mál þegar kemur að lagabreytingu á sviði úrbóta á því ófremdarástandi sem svo sannarlega er í þessum útlendingamálum og hefur verið um langt skeið. En mig langar bara til að hafa þessa spurningu einfalda fyrir hæstv. dómsmálaráðherra og þá langar mig að vita hvað það er nákvæmlega í málflutningi þingmanna Miðflokksins sem gefur hæstv. ráðherra tilefni til þess að fullyrða í fjölmiðlum, eins og hún hefur gert að undanförnu, um að Miðflokkurinn vilji ekki bæta þetta ófremdarástand sem fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum hefur lýst með nokkuð sannverðugum hætti að mínu mati. Hvað er það nákvæmlega sem hæstv. dómsmálaráðherra telur réttlæta þessi ummæli í garð Miðflokksins?