orð dómsmálaráðherra í útvarpsviðtali.
Virðulegi forseti. Þetta mál er nr. 24 vegna tafaleikja hv. þingmanns og hennar þingflokks. (Gripið fram í.) Þetta er ekki flókið reikningsdæmi. Þegar dagskráin ekki haggast þá gerist þetta, (Gripið fram í.) virðulegi þingmaður. (Gripið fram í.) Þetta er afleiðing ykkar framgöngu hér í þingsal. (Gripið fram í.) Auðvitað vekur það eftirtekt þegar fulltrúi Miðflokksins getur ekki skráð sig fyrir nefndaráliti um farþegalista. Hvað er þá á seyði? Auðvitað renna á mig tvær grímur. Auðvitað vekur það eftirtekt að Miðflokkurinn af öllum flokkum mæti ekki í umræðu um útlendingafrumvarp. Ég heyri af tafaleikjum í leigubílafrumvarpinu líka en ég ætla ekki að tjá mig um það, ég varð ekki sjálf vitni að því. Síðan er það kannski þessi afstaða, m.a. til alþjóðlegrar samvinnu löggæsluyfirvalda í gegnum Schengen og Europol. Ég veit ekki betur en að samvinna íslenskrar lögreglu við Europol hafi leitt til handtöku ISIS-liða á Akureyri. Var Miðflokkurinn mótfallinn þeim aðgerðum? (Gripið fram í.)