156. löggjafarþing — 49. fundur,  26. maí 2025.

nýting hliðarstrauma frá uppsjávarfiski til manneldis.

133. mál
[16:28]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Eydísi Ásbjörnsdóttur kærlega fyrir þessa mikilvægu fyrirspurn. Ég segi mikilvægu vegna þess að það er mikilvægt að fá einmitt umræðu í gang um þessi mál. Þetta skiptir máli þegar kemur að nýsköpun í sjávarútvegi og þegar verið er að leita allra leiða til að nýta sem best það hráefni sem til fellur. Ákvæðið sem vísað er til í spurningu hv. þingmanns hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Ef fiskur er hausaður og/eða slægður um borð skal það gert samkvæmt reglum um hollustuhætti sem fyrst eftir veiði og skulu lagarafurðirnar strax þvegnar. Innyfli og hlutar sem geta skapað hættu fyrir lýðheilsu skulu skilin frá eins fljótt og unnt er og haldið aðskildum frá lagarafurðum sem ætlaðar eru til manneldis. Lifur og hrogn sem ætluð eru til manneldis skal kæla eða geyma undir ís við hitastig sem er nálægt hitastigi bráðnandi íss eða frysts.“

Forseti. Í mjög stuttu máli er markmið ákvæðisins að vernda lýðheilsu með því að tryggja rétta og skjótvirka meðhöndlun fiskafurða um borð í veiðiskipum þar sem hætta er á örverumengun og rotnun getur verið meiri ef reglur eru ekki virtar. Það er alveg ljóst að sjávarútvegur og vinnsla á Íslandi hefur tekið miklum stakkaskiptum á liðnum áratugum — breytt viðhorf og kröfur til afla þar sem áhersla er lögð á gæði hráefnis og vöru frekar en að hámarka landað magn. Þá má einnig nefna að umtalsverðar breytingar hafa orðið á aðbúnaði, bæði á sjó og landi þegar kemur að meðhöndlun og kælingu afla sem hefur skipt sköpum í því að tryggja gæði og er árangurinn áberandi þegar litið er til stöðu íslensks fisks á alþjóðamörkuðum.

Samhliða þessari þróun hefur áhersla verið á aukna nýtingu allrar lífauðlindarinnar. Þessi áhersla hefur fengið sífellt meira vægi og stór fyrirtæki hafa orðið til í tengslum við nýtingu hliðarstrauma á borð við roð, hausa, beingarða, slóg eða innyfli. Það er því ljóst að viðhorfið til þessara strauma hefur umturnast frá því að þeir séu til trafala, eitthvert efni sem þarf að losa sig við hið fyrsta, yfir í að líta á þá sem möguleg tækifæri til efnahagslegs og umhverfislegs ábata. En það er mikilvægt, lykilatriði raunar, til þess að unnt sé að nýta þessa hliðarstrauma að þeir séu einnig meðhöndlaðir á réttan hátt svo gæði þeirra séu tryggð, sem er auðvitað grundvöllur matvælaöryggis.

Eðlilega og vegna þess sem kemur einmitt fram í máli hv. þingmanns um mikilvægi þess og um þessa breyttu nálgun þá hafa þessi mál verið til skoðunar hjá atvinnuvegaráðuneytinu og Matvælastofnun og m.a. einmitt verið fundað með norskum stjórnvöldum til að fá frekari upplýsingar um túlkun og beitingu Norðmanna á umræddum reglum sem hv. þingmaður kemur inn á. Niðurstaða þeirrar vinnu í ráðuneyti atvinnuvega er sú að gera ekki breytingar á löggjöfinni, það sé ekki nauðsyn, heldur mun Matvælastofnun breyta framkvæmd eftirlits síns og er komin vel á veg í þeirri vinnu. Sú breyting felst í stuttu máli í því að heimilt verður að nýta hliðarstrauma til manneldis að uppfylltum öllum þeim skilyrðum sem kveðið er á um varðandi framleiðslu matvæla eins og t.d. að til staðar sé starfsleyfi, að hráefni uppfylli kröfur um skynmat og aðrar gæðamælingar og að hráefnið sé meðhöndlað í samræmi við hollustuháttalöggjöfina. Það er trú mín að eftir þessa vinnu verðum við komin með umhverfi sem gerir aðilum kleift að nýta sér einmitt þessa hliðarstrauma í átt að aukinni verðmætasköpun.