nýting hliðarstrauma frá uppsjávarfiski til manneldis.
Virðulegur forseti. Ég fagna þessari umræðu mjög og hef raunar tekið þátt í henni við kerfið í mörg, mörg ár þar sem þetta hefur verið vesen. Ég fagna orðum hæstv. ráðherra um að það sé einhver lausn í sjónmáli. Ég vil þó benda á að það hefur verið komin lausn og verið reynt að gera breytingar og skoða þetta í mörg ár en það kemur alltaf eitthvað nýtt upp. Ég vona að það takist núna að klára þetta alla leið og bendi á að það er tvennt sem þarf til að þessir hliðarstraumar nýtist og er ástæðan fyrir því að við erum að ræða þetta hér í dag, og það er að íslenskur sjávarútvegur hefur haft fjárfestingargetu og hefur notað þá fjárfestingargetu í nýsköpun og þróun og svo þarf hann að fá svigrúm í löggjöfinni til að gera þetta.
Að lokum vil ég benda á það að við erum að tala hér um ein helstu matvælaframleiðslufyrirtæki landsins sem þekkja gæðavottanir sem allra best og allur þeirra útflutningur er byggður á en ég hef ekki miklar áhyggjur af því að þau séu að fara að framleiða eitthvað sem er mannheilsu til vansa.