156. löggjafarþing — 50. fundur,  26. maí 2025.

landamæri o.fl.

132. mál
[18:17]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Guðmundur Ari Sigurjónsson) (Sf):

Frú forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um landamæri, lögreglulögum og tollalögum, um farþegaupplýsingar fyrir lögreglu og tollyfirvöld.

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæðum laga er varða skyldur flytjenda til að afhenda stjórnvöldum upplýsingar um farþega og áhafnir, sem og heimildir stjórnvalda til vinnslu og miðlunar upplýsinganna. Markmið breytinganna er að efla farþegagreiningar og þar með auka öryggi borgaranna með því að breyta lögum til samræmis við efni samnings sem fyrirhugað er að íslensk stjórnvöld geri við Evrópusambandið um afhendingu svonefndra PNR-upplýsinga, sem eru farþegaupplýsingar loftfara. Efni frumvarpsins miðast því fyrst og fremst við þær skuldbindingar sem undirritun samningsins hefur í för með sér.

Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.

Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hlutinn árétta sérstaklega að nefndin fjallaði um gildissvið vinnslu og miðlunar farþegabókunargagna loftfara. Samkvæmt svokallaðri PNR-tilskipun sem er í gildi í Evrópusambandinu, er farþegaupplýsingadeildum aðildarríkja aðeins heimilt að vinna PNR-upplýsingar í því skyni að koma í veg fyrir, koma upp um, rannsaka eða saksækja fyrir hryðjuverk eða önnur alvarleg brot. Hugtakið „alvarlegt afbrot“ er skilgreint á grundvelli tilskipunarinnar sem hvert það brot sem tilgreint er á lista í viðauka II við tilskipunina og varðar a.m.k. þriggja ára hámarksrefsingu.

Í fyrirhuguðum samningi Evrópusambandsins við Ísland er kveðið á um sams konar gildissvið og því er nauðsynlegt að takmarka heimildir lögreglu til að vinna PNR-upplýsingar. Þar af leiðandi eru lagðar til breytingar á 17. gr. laga um landamæri þar sem kveðið verði á um þrengra gildissvið að því er varðar tilgang vinnslu með farþegabókunargögn loftfara, þ.e. PNR-upplýsingar, en á við um annars konar farþegaupplýsingar, svonefndar API-upplýsingar. Aðeins verði heimilt að vinna slíkar upplýsingar og miðla þeim vegna brota sem varða a.m.k. þriggja ára fangelsi. Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu er ekki litið svo á að þessi breyting hafi veruleg áhrif á möguleika og getu lögreglu og tollyfirvalda til að nýta PNR-upplýsingar í löggæslutilgangi enda eru þær alla jafna ekki notaðar í tengslum við rannsókn á minni háttar brotum.

Í umsögn frá lögreglunni á Suðurnesjum er lagt til að tilgreind verði sérstaklega í lögum þau brot sem talin eru í viðauka II með PNR-tilskipun Evrópusambandsins. Meiri hlutinn bendir á að umrædd tilskipun skuldbindur íslensk stjórnvöld hvorki á grundvelli EES-samningsins né Schengen-samstarfsins. Samkvæmt upplýsingum frá dómsmálaráðuneyti hefur slíkur listi ekki verið tekinn upp í samningsdrög Evrópusambandsins við Ísland heldur miðað við hugtakið „alvarlegt afbrot“ sem skilgreint er sem hvert það brot sem varðað geti a.m.k. þriggja ára fangelsi og vinnsla og miðlun upplýsinga í farþegabókunargögnum því ekki heimil í öðrum tilvikum vegna brota sem varða lægri hámarksrefsingu. Meiri hlutinn telur því ekki tilefni til að taka sams konar lista í íslensk lög með vísan til þess að það kynni að takmarka frekar, og ég endurtek það, að takmarka frekar heimild til vinnslu og miðlunar en á grundvelli samningsins.

Með vísan til framangreinds telur meiri hlutinn að um eðlilega takmörkun á heimild til vinnslu og miðlunar umræddra upplýsinga sé að ræða. Gæta þarf meðalhófs enda undirliggjandi annars vegar réttindi einstaklinga til friðhelgi einkalífs og hins vegar hagsmunir er varða öryggi og löggæslu á landamærum.

Þá fjallaði nefndin um landamæragæsla á hafi. Í umsögn Landhelgisgæslu Íslands er bent á að ekki sé gerður greinarmunur á meðferð upplýsinga vegna sjófara annars vegar og loftfara hins vegar við breytingar á 17. gr. laga um landamæri. Meiri hlutinn áréttar í því samhengi að breytingum á lögum um landamæri er ekki ætlað að hafa áhrif á skyldu farþegaskipa til að afhenda nánar tilteknar upplýsingar á grundvelli laga um vaktstöð siglinga nr. 41/2003.

Frá árinu 2021 hefur verið starfandi sérstök farþegaupplýsingadeild innan embættis ríkislögreglustjóra sem annast móttöku og vinnslu farþegaupplýsinga. Með frumvarpinu er lagt til að kveðið verði á um starfsemi deildarinnar í lögreglulögum og tollalögum. Samningur Íslands við Evrópusambandið felur í sér að tryggt verði að öll flugfélög sem flytja farþega hingað til lands geti uppfyllt þá skyldu að afhenda stjórnvöldum PNR-upplýsingar í samræmi við íslensk lög. Jafnframt mun samningurinn festa í sessi samstarf farþegaupplýsingadeildar lögreglu og tollyfirvalda við sams konar einingar í aðildarríkjum Evrópusambandsins.

Meiri hlutinn telur brýnt að frumvarpið nái fram að ganga svo unnt verði að fullgilda samning íslenskra stjórnvalda við Evrópusambandið um afhendingu á farþegabókunargögnum loftfara sem er fyrirhugað að verði undirritaður á árinu. Tiltekin evrópsk flugfélög hafa ekki afhent íslenskum stjórnvöldum upplýsingar um farþega og áhöfn þar sem þau hafa talið að þeim sé það ekki heimilt á grundvelli persónuverndarregluverks Evrópusambandsins. Farþegaupplýsingar eru mikilvægur liður við löggæslueftirlit á landamærunum og því brýnt að gera umræddan samning til að tryggja að öll flugfélög sem flytja farþega hingað til lands geti uppfyllt þá skyldu að afhenda stjórnvöldum PNR-upplýsingar í samræmi við íslensk lög. Því til viðbótar er gagnkvæmt og virkt alþjóðlegt samstarf mikilvæg forsenda fyrir störf farþegaupplýsingadeildar hér á landi enda mun samningurinn veita íslenskum stjórnvöldum aðgang að PIU-einingum innan Evrópusambandsins.

Meiri hluti nefndarinnar leggur til breytingar á frumvarpinu: Í fyrsta lagi er lögð til breyting er varðar reglugerðarheimild. Með frumvarpinu er lagt til að ráðherra setji reglugerð með nánari útfærslu á móttöku og vinnslu farþegaupplýsinga. Meiri hlutinn áréttar mikilvægi þess að slík reglugerð verði sett og tekur undir ábendingar í umsögn frá embætti ríkislögreglustjóra um nauðsyn þess að reglugerðin innihaldi ítarlegar reglur um afhendingu og meðferð farþegaupplýsinga til fyllingar lögunum. Líkt og fram kemur í greinargerð munu þær efnisreglur sem leiðir af fyrirhuguðum samningi stjórnvalda við Evrópusambandið um farþegabókunargögn loftfara verða settar í formi reglugerðar með stoð í lögum um landamæri.

Meiri hlutinn leggur til breytingu á 3. gr. frumvarpsins svo að skýrt verði að ráðherra verði ekki aðeins heimilt heldur skylt að útfæra nánari framkvæmd í reglugerð, m.a. hvað varðar upplýsingaskyldu og söfnun, vinnslu, miðlun og varðveislu upplýsinga um farþega og áhöfn, einkum upplýsingar í farþegabókunargögnum loftfara.

Í öðru lagi er lögð til breyting er varðar refsiramma tollalaga. Með frumvarpinu er lagt til að refsirammi tiltekinna brota á tollalögum verði hækkaður þannig að brot varði fangelsi allt að þremur árum í stað tveggja samkvæmt gildandi lögum. Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu er breyting á tollalögum annars vegar gerð til að færa refsingu vegna kjarnabrota á tollalögum til samræmis við sams konar brot að eðli og alvarleika samkvæmt almennum hegningarlögum og öðrum sérrefsilögum. Brotin sem um ræðir kunna að varða háar fjárhæðir og eru til þess fallin að grafa undan skilvirku og árangursríku tolleftirliti. Hins vegar er talið nauðsynlegt að hækka refsiramma brota til að tryggja að tollyfirvöld geti áfram notað farþegaupplýsingar í starfi sínu innan farþegaupplýsingadeildar til að koma í veg fyrir og rannsaka brot gegn umræddum ákvæðum í tollalögum.

Meiri hlutinn telur málefnaleg sjónarmið liggja til grundvallar þeim breytingum sem lagðar eru til á refsiramma vegna tiltekinna brota gegn tollalögum. Þá leggur meiri hlutinn til breytingu á 8. gr. frumvarpsins þar sem hámarksrefsing vegna brota gegn 1. mgr. 173. gr. tollalaga verði fangelsi allt að þremur árum í stað tveggja ára. Er það gert til að gæta samræmis og með vísan til eðlis og alvarleika þeirra brota sem kunna að falla undir ákvæðið.

Að framansögðu virtu leggur meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.

Undir álit meiri hlutans rita auk þess sem hér stendur, Grímur Grímsson, Guðrún Hafsteinsdóttir, Guðmundur Ari Sigurjónsson, Ingvar Þóroddsson, Jón Pétur Zimsen, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir og Sverrir Bergmann Magnússon.

Frú forseti. Þetta frumvarp ásamt þremur öðrum frumvörpum sem hæstv. dómsmálaráðherra hefur nú þegar mælt fyrir er með þeim hætti að aukið er öryggi borgaranna í landinu. Hin frumvörpin eru í fyrsta lagi frumvarp til laga um breytingu á lögum um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum, nr. 13/1984, einföldun málsmeðferðar, en mælt verður fyrir nefndaráliti háttvirtrar allsherjar- og menntamálanefndar hér á eftir. Seinni frumvörpin tvö eru frumvarp til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála, lögreglulögum, almennum hegningarlögum, lögum um fullnustu refsinga, lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og lögum um innheimtu opinberra skatta og gjalda, endurheimt ávinnings af brotum o.fl., og frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 80/2016, afturköllun alþjóðlegrar verndar. Seinni tvö frumvörpin eru enn í meðförum hv. allsherjar- og menntamálanefndar og kallað hefur verið eftir umsögnum hagaðila og gestir verið fengnir á fundi nefndarinnar. Svo sem áður segir þá munu öll þessi frumvörp auka öryggi almennings í landinu.