156. löggjafarþing — 50. fundur,  26. maí 2025.

landamæri o.fl.

132. mál
[18:29]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir yfirferðina á nefndarálitinu og vinnu nefndarinnar sem mér heyrist að hafi bara verið nokkuð ítarleg og vel farið yfir mikilvægt mál. Hér erum við að fjalla um mál sem tryggir okkur fleiri farþegaupplýsingar heldur en við höfum í dag. Lögreglan hefur samt sem áður eða yfirvöld, bæði tollayfirvöld og lögreglan saman, ef ég man rétt 94–95% af öllum farþegaupplýsingunum. Hér erum við að búa þannig um hnútana að við getum fengið það sem eftir stendur. Því langar mig að spyrja hv. þingmann hvort það hafi komið eitthvað fram í umræðum í nefndinni hvernig svo framkvæmdin sjálf gengur fyrir sig, að nýta þessar upplýsingar, og hvort það sé eitthvað sem upp á vantar þar eða þar sem hægt er að gera betur. Eða eru farþegagreiningar á fullu núna og ganga vel fyrir sig og vantar bara þessar upplýsingar inn frá þessum 5%? Þannig að það sem ég er að reyna að spyrja að er: Er þetta það eina sem vantaði upp á varðandi greiningar á landamærunum og erum við að nýta okkur þau úrræði í framkvæmd sem hægt er og vantaði bara þetta upp á? Eða er eitthvað annað varðandi framkvæmdirnar sem út af stendur og erum við að fara að taka á því líka í framhaldi af þessu?