landamæri o.fl.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir andsvarið. Með þessu frumvarpi er einmitt verið, líkt og hv. þingmaður kemur inn á, að loka þessu gati í farþegaupplýsingunum sem er lykilatriði til að tryggja öryggi á landamærunum. En það er einnig verið að lögfesta og setja í lög þessarar farþegaupplýsingadeildir lögreglunnar. Mig langar bara að deila því hér án þess að fara í nein smáatriði að maður fór að treysta þessu kerfi og bar mikla virðingu fyrir því fagfólki sem kom til umsagnar fyrir nefndina við að fá að heyra hversu faglega er unnið innan lögregluembættanna við að greina þessi gögn, þetta samstarf milli Evrópuríkjanna. Það er mjög gleðilegt að við séum að ná að loka þessu gati því að það fer fram gríðarlega fagleg og öflug vinna varðandi þær farþegaupplýsingar sem þau fá og vandamálið er einmitt að fá þá allar upplýsingarnar. Þetta er í rauninni lykilatriði til að geta tekið á skipulagðri glæpastarfsemi á landamærunum því að það má alveg leiða að því líkur að skipulögð glæpasamtök séu fullmeðvituð um hvaða flugfélög deila ekki þessum upplýsingum. Því er bara hægt að teikna upp leiðinni inn til Íslands án þess að farþegaupplýsingum sé deilt. Þannig að það er algjört lykilatriði til að tryggja landamærin að við séum með heildstæða sýn og getum þá haldið áfram að vinna með þessum faglegu löggæsludeildum, farþegaupplýsingadeildum sem við höfum til að grípa inn í og stöðva glæpamenn á landamærum.