156. löggjafarþing — 50. fundur,  26. maí 2025.

landamæri o.fl.

132. mál
[18:32]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið við andsvarinu. Ég tek undir að það er algjör unun að fylgjast með þessu mikla fagfólki og líka þessum metnaði sem er á landamærunum og þeirri löngu reynslu og þekkingu sem það er, sem ég held að eftir sé tekið meira að segja víða í Evrópu. Við búum líka við það að búa á eyju. En núna erum við sem sagt að tryggja að við höfum öll þau gögn og allt það sem er og ég skil svar hv. þingmanns þannig að okkur verði ekkert að vanbúnaði að tryggja þetta öryggi á landamærunum og nýta þessar upplýsingar. Það sé þá einmitt fjármögnuð mönnun og allt varðandi framkvæmdina við það að nýta upplýsingarnar sem við fáum með því að staðfesta þessa löggjöf. Það náttúrlega sparast töluvert álag og vinna og fjármunir með því að gera þessar greiningar og þá er hægt að koma í veg fyrir það að hér komi þeir aðilar sem ætla ekki að fara eftir okkar lögum um landamærin. Tollalögin verða þá skýr og þá verða þessi lög um landamæri og geymslu gagna orðin skýr og eins og ég skildi fyrra andsvar þá verður þetta komið, allt skipulag, allar lagaheimildir og það fjármagn sem til þarf til þess að nýta þær upplýsingar sem við erum að tryggja hér í þessu lagafrumvarpi og ættum þá að vera komin með, svona eins langt og hægt er, öryggi á landamærunum.