156. löggjafarþing — 50. fundur,  26. maí 2025.

landamæri o.fl.

132. mál
[18:34]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Guðmundur Ari Sigurjónsson) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir seinna andsvarið. Það er kannski hægt að hnykkja á því að þetta frumvarp er í rauninni að skapa þennan lagalega grundvöll til þess einmitt að loka þessu gati sem við vorum að lýsa en einnig hefur ráðherra boðað og mælt fyrir öðrum frumvörpum sem munu einnig styrkja landamærin ásamt því að ætla að efla lögregluembættið á Suðurnesjum og fjölga stoðum þar undir og löggæslumönnum við landamærin. Þetta frumvarp snýr að því að tryggja það að við fáum allar upplýsingarnar en svo er líka áætlað og hefur verið boðað að efla embættið sjálft, fjölga lögreglumönnum á landamærunum og taka markvisst á þessari skipulögðu glæpastarfsemi til að reyna að tryggja það eða reyna að lágmarka það, ef við orðum það kannski frekar þannig, að hingað geti leitað glæpamenn sem stunda skipulagða glæpastarfsemi á Íslandi. Það er forgangsmál.