landamæri o.fl.
Virðulegur forseti. Mig langar að spyrja hv. framsögumann málsins aðeins út í kannski umræðu um það sem kallað er í frumvarpinu refsirammi, svolítið sérstakt orðalag. Frumvarpið gerir ráð fyrir, eins og kallað er, að hér hafi verið hækkaður refsirammi brota til að tryggja að tollyfirvöld geti áfram notað farþegaupplýsingar í starfi sínu. Það sama á við um landamæralögin. En það er hérna verið að leggja til samræmingu á heimildum til að nýta þessar farþegalistaupplýsingar. Það eru miklar væntingar til þessa máls miðað við þá umræðu sem hefur verið í þjóðfélaginu um þessa farþegalista og það sem hefur skort upp á þar í skilum frá ákveðnum flugfélögum. Ég veit að fólk hefur miklar væntingar til þessa farþegalista og því langar mig aðeins að fá að vita eða heyra frá hv. framsögumanni hvort það hafi verið rætt í ljósi þess að það er verið í sjálfu sér að þrengja heimildir, bæði löggæsluyfirvalda og tollyfirvalda, til að nýta farþegaupplýsingar. Það er sem sagt verið að hækka, það er verið að miða við að það sé einungis hægt í þeim tilvikum þegar verið er að rannsaka brot sem geta varðað þriggja ára fangelsi, áður var það tveggja ára fangelsi. Þess vegna langar mig að spyrja hvort menn hafi rætt það sérstaklega í þessu ljósi að menn eru að tala um skipulagða glæpastarfsemi, vissulega, en evrópska tilskipunin sem við erum að innleiða með þessu er sérstaklega miðuð að hryðjuverkum eða öðrum alvarlegum brotum. Var eitthvað rætt hvort hægt sé betur að stemma stigu við t.d. þeim sem koma hingað gagngert í búðarhnupl sem við myndum kannski líta alla jafna á sem smáglæpamenn en safnast þegar saman kemur (Forseti hringir.) og auðvitað getur verið skipulögð brotastarfsemi? (Forseti hringir.) Af því að ég átta mig ekki á hver refsiramminn er þar undir.