156. löggjafarþing — 50. fundur,  26. maí 2025.

landamæri o.fl.

132. mál
[18:41]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Guðmundur Ari Sigurjónsson) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Andersen aftur seinna andsvarið og vil bara þar sem það eru ekki fleiri andsvör þakka fyrir góð andsvör í þessari lotu. Ég vonast til þess að hér verði breið sátt um að samþykkja þetta mál sem er mikilvægt mál til að tryggja öryggi almennings og örugg landamæri á Íslandi. Ég hlakka til að hlusta á umræðuna hér en vona að þingheimur allur muni styðja málið.