156. löggjafarþing — 50. fundur,  26. maí 2025.

landamæri o.fl.

132. mál
[18:42]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Frú forseti. Það er mér mikið gleðiefni að þetta mál skuli hafa komist á dagskrá hér í kvöld og sé komið á hreyfingu eftir góðar samningaviðræður þingflokksformanna í kvöld. Þetta finnst mér sýna hvers þingið er megnugt þegar við tökum okkur öll saman og ég bara þakka stjórnarandstöðuþingmönnum kærlega fyrir að hafa liðkað fyrir um að þetta mál kæmist á betri hreyfingu. Mig langaði bara til að árétta, þó að ég hafi kannski í sjálfu sér ekki miklu við að bæta frá því að ég mælti fyrir þessu máli, en í mínum huga er það mikilvægt að þetta mál fáist afgreitt sem allra fyrst. Þetta er, eins og ég hef nefnt, fyrsta frumvarpið sem ég mælti fyrir hér á Alþingi sem dómsmálaráðherra. Það gerði ég 6. mars.

Þetta mál er kannski svona hluti af aðgerðapakka gegn skipulagðri brotastarfsemi. Hv. framsögumaður rakti það ágætlega hérna áðan en annað mál sem er til meðferðar hjá allsherjar- og menntamálanefnd núna varðar aukin tækifæri stjórnvalda á að endurheimta fjárhagslegan ávinning af skipulögðum brotum. Þá erum við komin út í það að geta ekki bara nálgast fjármagn heldur andvirði og muni og ganga lengra í því en áður hefur verið, en þó til samræmis við norræna framkvæmd og löggjöf og í raun og veru að fylla upp í göt og gera okkur hliðstæð því sem þekkist í þeim löndum sem við gjarnan viljum bera okkur saman við.

Það er jafnframt frumvarp um framsal sakamanna og síðan en ekki síst það útlendingafrumvarp sem er nú til meðferðar hjá allsherjar- og menntamálanefnd sömuleiðis sem varðar afturköllum verndar gagnvart mönnum sem hér hafa fengið alþjóðlega vernd en hafa brotið af sér með svo alvarlegum hætti að rétt þykir að afturkalla hana.

Þetta frumvarp sem við erum að ræða hér í kvöld felur í sér breytingar á landamæralögum, felur í sér breytingar á tollalögum og felur í sér breytingar á lögreglulögum. Markmiðið með þeim öllum er að efla landamæraeftirlit okkar og færa yfirvöldum heimildir til vinnslu og heimildir til greininga á upplýsingum um farþega sem hingað koma til lands, og aftur: Markmiðið er einfaldlega að efla löggæslueftirlit á landamærum og þetta er markviss aðgerð til þess að ná betri tökum á skipulagðri brotastarfsemi með því að geta haft yfirsýn yfir það hverjir eru að koma hingað til lands. Við ætlum okkur, og ég heyri og finn á Alþingi að þingheimur er sammála um þetta, að taka fastar á skipulagðri brotastarfsemi og mér fannst liggja á að þetta mál fengi að komast í 2. umræðu, ekki bara vegna þess, þó að það sé sannarlega stórt og mikilvægt markmið, en við vitum hvernig opinber umfjöllun hefur verið um það að það séu ákveðin göt á Íslandi varðandi aðgengi yfirvalda að upplýsingum. Þau eru sannarlega ekki stór. Það er rakið í greinargerðinni að við erum nú þegar með upplýsingar um 93% af þeim farþegalistum sem hingað koma. En ég er á því að það sé refsipólitísk vont að það fái að malla umræða um að það séu göt og gloppur í íslensku kerfi hvað þetta varðar og ég er stolt af því að þingið geti þá sameinast um það hér í kvöld í 2. umræðu þessa máls með því að segja skýrt frá því: Við erum að loka þessum götum. Við erum að efla getu yfirvalda í Keflavík til að geta tekið fastar á skipulagðri brotastarfsemi.

Mig langar í lokin að nefna að það blasir auðvitað við og leiðir af sjálfu sér að farþegaupplýsingar eru upplýsingar sem hafa fyrst og fremst þýðingu fyrir yfirvöld í Keflavík. Við erum eyja og þar er okkar alþjóðlegi flugvöllur en þar stendur til, eins og ég hef áður nefnt, að efla það embætti með fleiri stoðum og það hefur þá með það að gera að flytja farþegaflutningadeild ríkislögreglustjóra yfir til lögreglunnar á Suðurnesjum með fleiri störfum og með þessum heimildum.

Kannski ég láti þetta duga í bili en fagna því að við séum að ræða þetta mál hér í kvöld og hlakka til að fylgjast með umræðunni.