framsal sakamanna og önnur aðstoð í sakamálum.
Frú forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar fyrir nefndaráliti með breytingartillögu á frumvarpi til laga um breytingu á lögum um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum, nr. 13/1984, einföldun málsmeðferðar.
Með frumvarpinu eru lagðar til ýmsar nauðsynlegar breytingar sem varða bæði beiðnir um alþjóðlega réttaraðstoð í sakamálum og framsal sakamanna. Markmið breytinganna er að gera lögin skýrari, auka skilvirkni og tryggja að löggjöfin endurspegli þær þjóðarréttarlegu skuldbindingar sem Ísland hefur undirgengist. Breytingunum er m.a. ætlað að einfalda og hraða málsmeðferð, auk þess sem orðalag verður uppfært til samræmis við lög um meðferð sakamála, nr. 88/2008.
Þá ber sérstaklega að nefna að verði frumvarpið samþykkt lýkur fullgildingarferli 2. viðbótarbókunar við samning Evrópuráðsins um gagnkvæma réttaraðstoð í sakamálum frá 1959. Ísland undirritaði viðbótarbókunina fyrir rúmum tveimur áratugum, nánar tiltekið 8. nóvember 2001, og því mikilvægt að þetta mál sé loks klárað. Sé það gert skapar það jafnframt grundvöll til að fullgilda 3. viðbótarbókun við sama samning, en hún er nú til umfjöllunar innan Evrópuráðsins.
Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hlutinn árétta sérstaklega: Ákvæði frumvarpsins um gagnkvæma réttaraðstoð lúta einkum að því að skýra og bæta málsmeðferð alþjóðlegra réttarbeiðna. Helsta nýmæli frumvarpsins að þessu leyti er að ríkissaksóknari fær hlutverk miðlægs stjórnvalds við meðferð og afgreiðslu bæði réttarbeiðna sem berast erlendis frá og þeirra sem sendar eru frá íslenskum yfirvöldum. Ríkissaksóknari hefur frá árinu 2020 sinnt þessu hlutverki varðandi réttarbeiðnir sem berast erlendis frá á grundvelli tiltekinna alþjóðasamninga, en dómsmálaráðuneytið hefur sinnt þessu hvað varðar beiðnir sem sendar eru frá innlendum yfirvöldum auk þess að taka við beiðnum erlendis frá í ákveðnum tilvikum, svo sem á grundvelli Búdapestsamningsins. Verði frumvarpið að lögum verður hlutverk ríkissaksóknara víðtækara og mun embættið sinna hlutverki miðlægs stjórnvalds við meðferð hvers kyns réttarbeiðna.
Þessi breyting er liður í því að ljúka við fullgildingu 2. viðbótarbókunar við Evrópuráðssamninginn frá 1959. Hins vegar er hún einnig komin til vegna þess að eðlilegt þykir að ríkissaksóknari fari alfarið með þetta hlutverk í tengslum við meðferð og afgreiðslu réttarbeiðna í ljósi grundvallarreglunnar um sjálfstæði ákæruvaldsins og stöðu ríkissaksóknara sem æðsta handhafa slíks valds. Hann hafi í krafti þeirrar stöðu eftirlits- og stjórnunarheimildir með lögreglu og getur fylgst með framvindu málanna, auk þess sem þetta fyrirkomulag tryggir betri yfirsýn og samræmingu við móttöku, afgreiðslu og meðferð hvers kyns réttarbeiðna.
Meiri hlutinn áréttar einnig það sjónarmið sem kom fram fyrir nefndinni að ekki sé æskilegt að dómsmálaráðuneyti hafi hlutverki að gegna við rannsókn sakamála í ljósi framangreindar grundvallarreglu um sjálfstæði ákæruvalds og er breytingin til þess fallin að styrkja þessa reglu.
Auk framangreinds telur meiri hlutinn þá tillögu frumvarpsins mikilvæga að lögfesta skýran lagagrundvöll til að taka á móti og senda réttarbeiðnir til alþjóðastofnana. Er um nýmæli að ræða og verði frumvarpið að lögum verður í fyrsta sinn kveðið á um að réttarbeiðnir geti borist til og frá alþjóðastofnunum en ekki einvörðungu á milli ríkja eins og núgildandi lög kveða á um. Í aðsendu minnisblaði frá dómsmálaráðuneytinu frá 30. apríl síðastliðnum kemur fram að nýmælið sé einkum komið til svo að Ísland geti tekið á móti og unnið úr réttarbeiðnum frá saksóknarembætti ESB, EPPO, en embættið rannsakar og saksækir glæpi gegn sameiginlegum fjármunum ESB. EPPO er nauðsynlegt að fá upplýsingar og réttaraðstoð frá aðildarríkjum að Evrópuráðssamningnum um gagnkvæma réttaraðstoð í sakamálum frá 1959. Til að Íslandi sé það heimilt var talið að lögfesta þyrfti skýra heimild í lögum til að taka á móti og bregðast við slíkum réttarbeiðnum frá embættinu og miðar tillaga frumvarpsins að því. Jafnframt var ákveðið að hafa ákvæðið opið að því leytinu til að það gæti einnig tekið til mögulegra réttarbeiðna til og frá öðrum mögulegum alþjóðastofnunum sem settar verða á fót í framtíðinni, t.d. réttarbeiðni sem er gert ráð fyrir að geti borist frá sérstökum dómstól vegna glæpa gegn friði gagnvart Úkraínu, svo og frá Alþjóðastríðsglæpadómstólnum í Hollandi.
Önnur nýmæli eru helst að leggja til nýjan V. og VI. kafla í lögin, sem hafa að geyma ákvæði sem mæla fyrir um málsmeðferð réttarbeiðna á skýran og einfaldan hátt. Þá eru breytingarnar einnig liður í að ljúka fullgildingu 2. viðbótarbókunar við Evrópuráðssamninginn frá 1959. Meiri hlutinn telur mikilvægt að þessar breytingar nái fram að ganga, en þær muni skýra og einfalda ferli réttarbeiðna sem auki einnig gagnsæi, skilvirkni og árangur í málaflokknum.
Meiri hlutinn fagnar þá sérstaklega breytingunni í h-lið 16. gr. frumvarpsins þess efnis að verði frumvarpið að lögum verði íslenskum yfirvöldum heimilt að semja um þátttöku í sameiginlegum rannsóknarhópum, t.d. á vegum Europol eða Eurojust. Er um mikilvæga breytingu að ræða sem mun styrkja innlend löggæsluyfirvöld í baráttunni gegn skipulagðri glæpastarfsemi.
Þá fjallaði nefndin einnig um framsal sakamanna. Ákvæði frumvarpsins er varða framsal sakamanna lúta að meginstefnu að því að breyta uppröðun ákvæða með það að markmiði að skýra og einfalda lagatextann og láta lögin endurspegla raunverulega framvindu framsalsmála, ásamt því að uppfæra þau til samræmis við lög um meðferð sakamála, nr. 88/2008.
Einungis er um minni háttar efnisbreytingar að ræða sem varða ekki skilyrði framsals. Þær eru í fyrsta lagi að framsalsbeiðnir fari fram milli dómsmálaráðuneyta í stað diplómatískra leiða sem er bæði í samræmi við núverandi framkvæmd en leiðir einnig af 5. gr. 2. viðbótarbókunar frá 1984 við samning Evrópuráðsins frá 1957 um framsal sakamanna. Með þessu er stefnt að því að einfalda málsmeðferð. Í öðru lagi að ríkissaksóknari fái skýrara hlutverk fyrir dómstólum í málaflokknum, sem eykur skilvirkni og samræmi.
Meiri hlutinn tekur undir það markmið frumvarpsins að skýra og einfalda lagaumhverfi við framsal sakamanna og láta lögin endurspegla raunverulega framvindu slíkra mála. Um mikilvægar breytingar er að ræða sem tryggja enn frekar að slík mál séu unnin á skilvirkan, gagnsæjan og fagmannlegan hátt.
Að lokum vill meiri hlutinn benda á að ef til vill sé tilefni til að ráðuneytið taki til skoðunar að færa meðferð framsalsmála alfarið frá ráðuneytinu til ríkissaksóknara, en það sé eðlilegra með vísan til sjónarmiða um sjálfstæði ákæruvaldsins sem nefnd voru að framan og þess að ekki sé æskilegt að ráðuneytið fari með mál sem tengist sakamálum. Þetta myndi væntanlega einnig bæði einfalda og tryggja samræmingu við meðferð slíkra mála.
Nefndin fjallaði að auki um yfirtöku saksóknar. Í frumvarpinu er lögð til veigamikil breyting sem veitir íslenskum yfirvöldum skýra heimild til að taka yfir saksókn mála frá erlendum ríkjum, óháð því hvort samningur sé til staðar. Breytingin byggir á ábendingum ríkissaksóknara og miðar að því að styrkja lagaheimildir ákæruvaldsins í ljósi vaxandi alþjóðlegrar glæpastarfsemi og réttarvörslusamvinnu. Meiri hlutinn styður breytinguna og leggur áherslu á að mikilvægt sé að lagaheimild til að yfirtaka saksókn sé í lögum og málsmeðferð í slíkum tilvikum sé skýrt afmörkuð.
Nefndin fjallaði loks um áhrif frumvarpsins. Í umsögn ríkissaksóknara er bent á að embættið sé ósammála því mati sem fram kemur í kafla frumvarpsins um mat á áhrifum þess um að hvorki sé gert ráð fyrir að lögfesting frumvarpsins hafi útgjaldaáhrif á ríkissjóð né sveitarfélögin. Að mati ríkissaksóknara stenst það mat ekki þar sem ljóst sé að verði frumvarpið að lögum þurfi að fjölga ákærendum við embætti ríkissaksóknara um a.m.k. einn, með tilheyrandi kostnaði, til að sinna þeim auknu verkefnum sem lögfestingin hefur í för með sér. Af þessu tilefni beinir meiri hlutinn því til dómsmálaráðuneytis að taka til skoðunar hvaða áhrif lagabreytingarnar muni hafa á embættið með hliðsjón af auknum verkefnum þess verði frumvarpið að lögum.
Meiri hluti nefndarinnar leggur til breytingar á frumvarpinu sem varða einungis tæknilega þætti og þarfnast ekki nánari skýringa.
Að framansögðu virtu leggur meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð er grein fyrir í áliti meiri hlutans.
Undir álit meiri hlutans rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Grímur Grímsson, Guðrún Hafsteinsdóttir, Ingvar Þóroddsson, Jón Pétur Zimsen, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir og Sverrir Bergmann Magnússon.
Frú forseti. Þetta frumvarp, ásamt þremur öðrum frumvörpum sem hæstv. dómsmálaráðherra hefur mælt fyrir, er með þeim hætti að aukið er öryggi borgaranna hér á landi. Hin frumvörpin eru frumvarp til laga um breytingu á lögum um landamæri, lögreglulögum og tollalögum en mælt var fyrir nefndaráliti hv. allsherjar- og menntamálanefndar hér áðan. Seinni frumvörpin tvö eru frumvarp til laga um breytingu á lögum um breytingu á lögum um meðferð sakamála, lögreglulögum, almennum hegningarlögum, lögum um fullnustu refsinga, lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og lögum um innheimtu opinberra skatta og gjalda og frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 80/2016. Seinni tvö frumvörpin eru enn í meðförum hv. allsherjar- og menntamálanefndar og kallað hefur verið eftir umsögnum hagaðila og gestir verði fengnir á fund nefndarinnar. Svo sem áður segir munu frumvörp þessi auka öryggi almennings í landinu.