156. löggjafarþing — 50. fundur,  26. maí 2025.

framsal sakamanna og önnur aðstoð í sakamálum.

131. mál
[20:04]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þetta mál hljómar eins og tæknileg útfærsla eða eins og það heitir, einföldun málsmeðferðar, þetta er svona tæknileg útfærsla á einhverri málsmeðferð. Ég hefði samt áhuga á að heyra hvort hv. allsherjar- og menntamálanefnd hafi eitthvað rætt hagsmuni Íslands í þessu sambandi með framsal sakamanna almennt. Getur hv. framsögumaður málsins eitthvað frætt mig um það? Frumvarpið sjálft er í rauninni ógagnsætt um framkvæmd þessara framsalsmála almennt. Hvað reynir oft á þetta framsal? Hvenær má segja græðir eða hagnast Ísland á þessum reglum og þessum samningum við önnur ríki og í hversu miklum mæli sitjum við hins vegar uppi með einhvern aukinn óþarfa kostnað, t.d. við að taka á móti sakamönnum eða við getum ekki framselt erlenda sakamenn til síns heima? Það eru kannski reglur um að sakamenn, t.d. dæmdir sakamenn, þurfi að óska sjálfir eftir því að fá að afplána. Ég bara velti því fyrir mér hvort þetta hafi eitthvað sérstaklega verið rætt, þ.e. hagsmunir Íslands almennt af öllum þessum alþjóðasamningum og hvernig þetta snýr að okkur svona heilt yfir.