framsal sakamanna og önnur aðstoð í sakamálum.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Andersen fyrir andsvarið. Þetta var vissulega rætt á fundum nefndarinnar. Með því að innleiða þetta í íslensk lög erum við að einfalda málsmeðferð, bæði fyrir okkur að framselja glæpamenn sem eiga að afplána sinn dóm annars staðar, hafa hlotið dóm erlendis, en einnig ef einstaklingur sem hefur brotið af sér hér á landi, hefur hlotið dóm hér, þá einfaldar þetta okkur að sækja það að hann verði sendur til Íslands til afplánunar. Þetta er í rauninni til þess að ná þessum markmiðum, að einstaklingur sem hefur brotið af sér og hlotið dóm geti afplánað dóminn í því landi sem hann hefur hlotið dóminn. Það er verið að einfalda alla málsmeðferð til að einfalda stjórnvöldum að eiga þessi skipti milli landa á viðkomandi einstaklingum.