156. löggjafarþing — 50. fundur,  26. maí 2025.

framsal sakamanna og önnur aðstoð í sakamálum.

131. mál
[20:12]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Guðmundur Ari Sigurjónsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Manni er kannski illa við að fara í svona einstök mál úr þessum ræðustól en það er mikilvægt að hafa í huga að hér erum við að tala um að framselja glæpamenn sem hafa hlotið dóm í öðrum löndum svo að þeir geti komist til þess lands og afplánað sinn dóm. Þannig að ef viðkomandi fremur glæp hér og er að afplána dóm hér þá erum við ekki að framselja hann til annars lands út frá þessum reglum sem við erum að fjalla um hér, heldur er þetta leið til að fá viðkomandi til að afplána sinn dóm í því landi sem hann hefur hlotið dóminn.