framsal sakamanna og önnur aðstoð í sakamálum.
Frú forseti. Hér ræðum við í 2. umræðu frumvarp til laga um breytingu á lögum um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum, um einföldun málsmeðferðar. Sjálfur er ég alltaf hér um bil fylgjandi því að málsmeðferð sé einfölduð sem og kerfið og regluverk þar sem nokkur kostur er, þegar ekki er gefið eftir með nauðsynleg atriði sem kerfinu og eftirlitinu er ætlað að fylgja eftir og passa upp á. En þetta mál held ég að sé gegnumgangandi, eins og mér sýnist það vera, bara allt til bóta og ég mun styðja við og samþykkja það þegar það kemur hér til lokaafgreiðslu í framhaldinu.
Mér hefur þótt — og það var ástæða andsvars míns við hv. framsögumann nefndarálits meiri hluta, hv. þm. Guðmund Ara Sigurjónsson — að það virðist að einhverju marki hafa verið ruglingur, misskilningur í umræðunni að þetta mál væri til þess fallið að létta á þrýstingi sem við þekkjum hér úr umræðunni að hefur skapast m.a. vegna síaukinna afbrota erlendra aðila sem eru síðan í fangelsum hér dagana langa og afplána sinn dóm. Það er auðvitað markmið í sjálfu sér að forma regluverkið þannig að það verði okkur auðveldara bæði að fyrirbyggja þann straum erlendra glæpamanna sem hingað sækja en sömuleiðis að auðvelda okkur að losna við þá úr landi, svo ég orði það nú bara eins og ég hugsa það, og í því samhengi hljóta að koma til skoðunar lausnir eins og þær sem til að mynda frændur okkar í Danmörku hafa verið að forma varðandi það að hýsa afbrotamenn annars staðar heldur en á danskri grundu.
Þetta mál er af sama meiði og það sem við ræddum hér á undan varðandi farþegalista, mál frá hæstv. dómsmálaráðherra sem komst óvænt í fréttir í byrjun dags í gær eftir að mínu mati heldur ómaklega gagnrýni hæstv. dómsmálaráðherra á það með hvaða hætti málið hefði verið afgreitt hvað dagskrá Alþingis varðar síðan það komst yfir höfuð á dagskrá rúmum mánuði eftir að það var afgreitt út úr nefnd um miðjan maí. Málið var aftast eða næstaftast á dagskrá hvers þingfundar en sem betur fer, með samstilltu átaki í dag þar sem stjórnarandstaðan ákvað að rétta hæstv. dómsmálaráðherra hjálparhönd með það fyrir augum að auka öryggi borgaranna, þá erum við sem betur fer komin á þann stað að ræða þetta mál sem og það fyrra sem við ræddum hér í 2. umræðu og undirbúa og vinna að lúkningu þeirra og samþykkt.
Ég vil koma örsnöggt inn á það sem hv. framsögumaður nefndarálits meiri hluta kom inn á hér varðandi kostnaðaráhrif. Það eru auðvitað afleidd kostnaðaráhrif af máli eins og þessu. Það er bara til samræmis við það sem kemur fram í umsögn þess embættis sem verkefnið fær í fangið. Það er að mínu mati ekki sanngjarnt að skauta þannig fram hjá því að embætti séu færð aukin verkefni, auknar skyldur í raun, en segja: Það verður enginn viðbótarkostnaður af þessu nema menn nýti heimildina. Það hlýtur að vera einhver meining á bak við það sem við bardúsum hér og erum að leiða í íslenskan rétt.
Ég vil bara fagna því að þetta mál sé komið hér til 2. umræðu. Það er til bóta gegnumgangandi en ég bara ítreka það sem kom fram í svörum hv. framsögumanns, Guðmundar Ara Sigurjónssonar, að þetta er ekki lausn á því sem skiptir okkur svo miklu máli, að ná tökum á því ástandi sem mjög aukinn fjöldi erlendra glæpamanna skapar í fangelsum landsins nú um stundir.