forgangsröðun þingmála.
Frú forseti. Ég held að meint verkstjórn ætti að taka einhvers konar byrjendanámskeið í verkefnastjórnun. Núna þegar það eru tíu dagar í áætluð þinglok eru enn að berast í 1. umræðu risastór mál, sem eru ekki út af eldsumbrotum eða sjúkdómum eða einhverju neyðarástandi eða einhverjum tímasetningum. Nei, einfaldlega mál sem hefðu annars vegar getað komið fram fyrr eða geta hæglega beðið. Það þarf vart að minna á að þingsköpin búa til ramma um hvað er æskilegt að sú löggjöf sem við búum við í þessu landi fái í umræðu. Þær eru þrjár. Það þarf að vera nefndarvinna inni á milli. Tíminn þarf að vera nægur, sér í lagi fyrir stjórnarandstöðuna að spyrja spurninga og taka þá umræðu sem er hennar lýðræðislega verkefni að geta gert. Í þessu ætlar meiri hlutinn og hæstv. ríkisstjórn bara að strika yfir. Skiptir engu máli. Hér á boða enn ný mál þrátt fyrir að þingið allt sé í algerri skrúfu með öll þau mál sem ekki er búið að ganga frá. Ég hvet hæstv. forseta að óska eftir því að hæstv. ríkisstjórn forgangsraði sínu lífi með betri hætti.