156. löggjafarþing — 51. fundur,  2. júní 2025.

forgangsröðun þingmála.

[15:07]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegur forseti. Hv. þm. Hildur Sverrisdóttir fór ágætlega yfir þetta hérna áðan. Það er í rauninni algerlega ótækt að hér á síðustu dögunum séum við að fá þrjú mál ný inn á dagskrá sem þarf að mæla fyrir og þurfa að fara í umsagnarferli sem venjulega tekur um tvær vikur og þá er öll umfjöllunin eftir. Í mínum huga snýst þetta ekki um fjölda mála sem verkstjórnin ætlar að koma hér í gegn. Þetta snýst um gæði löggjafarinnar. Það er afar mikilvægt að við sýnum virðingu fyrir þeim störfum sem hér fara fram og gefum þeim málum sem lögð eru fram þann tíma sem þau þurfa í nefndum og í umræðu. Ég tek því undir orð hv. þm. Hildar Sverrisdóttur um að hér köllum við eftir forgangsröðun um hvaða mál við viljum klára og hvaða mál er ásættanlegt að bíði haustsins.