forgangsröðun þingmála.
Frú forseti. Ég tek undir með þeim þingmönnum sem hér hafa komið upp varðandi störfin í þingsalnum. Það eru að koma inn mál frá ríkisstjórninni núna, ný mál, fjöldamörg mál, t.d. frumvarp um strandveiðar sem á eftir að mæla fyrir, og ég bara spyr: Hvernig ætla menn að ljúka þessu þingi? Það á eftir að senda þetta frumvarp til umsagna, ræða þetta í nefnd, taka út úr nefnd og ræða við 2. umræðu. Hvernig ætla menn á þessum átta dögum, átta þingdögum sem eftir eru, að afgreiða þetta hér þegar allur þessi stabbi er enn þá inni í nefndunum og er að koma hérna út og inn í þingið? Hvernig ætla menn að fara að þessu? Áætlun er enn þá í gildi, starfsáætlun þingsins, þannig að ég spyr frú forseta: Hvernig á að klára þetta hér á þessum fáu dögum sem eftir eru? Við erum tilbúin að vera hér í sumar. Það er alveg sjálfsagt, en ég vil bara benda á það hversu seint þetta kemur fram, fjöldamörg mál og erfið mál og stór mál.