156. löggjafarþing — 51. fundur, 2. júní 2025.
forgangsröðun þingmála.
Í tilefni þessara orða vill forseti taka fram að hún er vel meðvituð um stöðu þingstarfanna og hversu margt það er sem við eigum eftir að afgreiða hér á þessu löggjafarþingi en jafnframt fagnar því að stjórnarfrumvörp hafi borist fljótt og vel, flest hver, til Alþingis. Það er verkefni þessa forseta næstum því á hverjum einasta fundi sem hún situr að brýna fólk í forgangsröðun þeirra verkefna sem fyrir liggja.