forgangsröðun þingmála.
Virðulegi forseti. Ég vil taka undir með þeim sem hér hafa talað í dag undir þessum lið um fundarstjórn forseta. Það er með öllum ólíkindum hversu seint mál eru að koma hér til þingsins og risastór mál sem snerta hvern einasta Íslending með beinum hætti. Hér er verið að setja á dagskrá í dag í 1. umræðu frumvarp til laga um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, víxlverkun örorkulífeyrisgreiðslna. Þetta er risamál sem varðar hverja einustu manneskju á Íslandi og við erum að hefja 1. umræðu um það í dag og það eru átta dagar eftir. Ég minni á að umsagnarfrestur á að vera tvær vikur í málum svo að vel sé og við ætlum að ræða þetta mál í þremur umræðum. Ég hvet ríkisstjórnina (Forseti hringir.) til að forgangsraða og ég hvet ríkisstjórnina til að koma til samtals við stjórnarandstöðuna. Við erum alltaf til í (Forseti hringir.) samtalið — það hefur ekki átt sér stað — ef við ætlum að ná að klára þessi mikilvægu mál á þessu þingi.