156. löggjafarþing — 51. fundur,  2. júní 2025.

forgangsröðun þingmála.

[15:11]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég kem bara hérna upp til þess að gleðja þingheim hinn fallega, fagra, góða og háttvirta. Það er sannarlega ekki sama og skrifað að það séu eftir átta dagar af þessu þingi þó svo að dagskráin segi til um það núna, enda er alveg með ólíkindum hvernig hver hv. þingmaður á fætur öðrum kemur hér og stígur upp í ræðustól Alþingis eins og hann hafi aldrei nokkurn tíma komið inn á Alþingi Íslendinga áður. En ég get alveg glatt ykkur öll með því að hvert einasta mál sem við teljum mikilvægt að fari í gegnum þetta löggjafarþing, það fer þangað, ekki á átta dögum, kannski 80 dögum, ég veit ekki hversu mörgum dögum. En það er gleðilegt að heyra að hv. þingmenn eru algerlega tilbúnir í það að vera með okkur hér í sumar til að vinna að málunum. En ef hv. stjórnarandstaða telur það til sóma að tefja í rauninni lýðræðislega afgreiðslu mála hér á Alþingi Íslendinga, eins og hér hefur verið viðhaft, jafnvel mál sem öll stjórnarandstaðan er einhuga um — fríverslunarsamning við Taíland, hvað þá annað — að geta eytt þar sex, átta klukkustundum, þetta er lítilsvirðandi framganga gagnvart þjóðinni allri, lítilsvirðandi, (Forseti hringir.) og það í 1. umræðu um málin. Þetta er einstakt, fordæmalaust.