forgangsröðun þingmála.
Frú forseti. Já, ég svo sem hef ekki verið neitt sérstaklega lengi á þingi en þó einhver ár og það er ekkert nýtt við það að núna rúmri viku fyrir þinglok séum við pínulítið í myrkrinu með það hvernig þingstörfum muni ljúka. Þetta gengur alltaf eins fyrir sig. Auðvitað fer núna í hönd samtal á milli stjórnar og stjórnarandstöðu um það hvernig er hægt að ljúka þingstörfum. Ef það þarf að vera lengur inn í júní þá verðum við lengur í júní en það er ekkert nýtt í því heldur að stundum komi mál seint fram. Ég hef sjálfur flutt ræður hér í fundarstjórn forseta þar sem ég hef verið að kalla eftir málum, boðuðum málum frá ríkisstjórninni sem komu einhvern tímann eftir dúk og disk. Það geta verið alls konar eðlilegar skýringar á því. En auðvitað er það þannig að í vikunni hljótum við að setjast niður, stjórn og stjórnarandstaða, og reyna að ná einhverju samkomulagi um það hvernig eigi að klára þingstörfin. En ein er reglan sú sem við skulum öll hafa í huga, að hlutverk minni hlutans eða stjórnarandstöðunnar er ekki að koma í veg fyrir það (Forseti hringir.) að lýðræðislega kjörinn meiri hluti fái málin sín í atkvæðagreiðslur í sal.