forgangsröðun þingmála.
Virðulegur forseti. Frumvarp um víxlverkun örorkulífeyrisgreiðslna á sér langan aðdraganda. Þetta vita hv. þingmenn. Þetta veit m.a. formaður Sjálfstæðisflokksins enda er þetta verkefni sem hófst að verulegu leyti í tíð fyrri ríkisstjórnar. Þetta er langur aðdragandi. Eftir að ný ríkisstjórn tók við þá var unnið að þessu af miklu kappi og hér er verið að taka á atriðum sem hefði átt að vera búið að taka á fyrir löngu.
Ég veit að Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagst mjög harkalega gegn því að lífeyrisþegar þessa lands fái sams konar hækkanir og verða á vinnumarkaði, sem er frumvarp sem þessi ríkisstjórn hefur lagt fram og mun fylgja eftir á þessu þingi, en ég trúi því ekki fyrr en ég sé það að stjórnarandstaðan ætli í alvörunni að reyna að hafa af lífeyrisþegum þá 4 milljarða sem er verið að tryggja þeim með þessu frumvarpi, ætli í alvörunni að standa gegn því að við skilum lífeyrisþegum raunverulega þeim ávinningi sem stefnt var að með endurskoðun (Forseti hringir.) örorkulífeyriskerfisins. Ég trúi því ekki fyrr en ég sé það að Sjálfstæðisflokkurinn ætli í alvörunni að hamast gegn því líka, bæði hamast gegn því að við bindum enda á kjaragliðnun lífeyris og launa (Forseti hringir.) og hamast gegn því að endurskoðun örorkulífeyriskerfisins skili öryrkjum raunverulega þeim ávinningi sem að var stefnt. Ég trúi því ekki fyrr en ég sé það. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)