endurmat túlkunar mannréttindasáttmála Evrópu.
Virðulegi forseti. Í síðustu viku birtu þjóðarleiðtogar í Evrópu, þar á meðal forsætisráðherra Danmerkur, Ítalíu, Póllands, Austurríkis og Tékklands, sameiginlega yfirlýsingu um að nú sé tímabært að endurmeta hvernig túlkun mannréttindasáttmála Evrópu samræmist þeim raunverulegu áskorunum sem ríki Evrópu standa frammi fyrir. Yfirlýsingin snýst ekki um að hafna mannréttindum heldur hitt, að tryggja að lýðræðislega kjörnir fulltrúar hafi raunverulegt svigrúm til að verja sínar þjóðir gegn öryggisógnum og misnotkun kerfa. Þetta eru ekki jaðarríki sem sendu þessa yfirlýsingu. Þetta eru ríki sem hafa tekið við miklum fjölda innflytjenda, staðið frammi fyrir alvarlegum áskorunum og orðið vitni að því hvernig túlkun dómstóla á sáttmálum getur komið í veg fyrir brottvísun grófra afbrotamanna. Yfirlýsingin er leiðtogaleg. Hún er römmuð inn af virðingu fyrir mannréttindum en kallar á nauðsynlega umræðu um hvar mörkin liggja.
Því spyr ég hæstv. forsætisráðherra: Hvers vegna var Ísland ekki með? Var það pólitísk ákvörðun? Höfðu íslensk stjórnvöld tækifæri til að taka þátt? Ef svo er, af hverju var því hafnað? Er ráðherrann ósammála því að endurskoða eigi hvernig túlkun alþjóðlegra reglna hefur í sumum tilvikum komið í veg fyrir að hægt sé að vísa afbrotamönnum úr landi? Og loks: Hvers vegna kýs íslensk ríkisstjórn að þegja þegar önnur Evrópuríki rísa upp og tala með ábyrgð um það sem flestir þora ekki að nefna upphátt?