156. löggjafarþing — 51. fundur,  2. júní 2025.

endurmat túlkunar mannréttindasáttmála Evrópu.

[15:21]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Svar forsætisráðherra var alveg skýrt. Á meðan stór og öflug Evrópuríki eins og Pólland, Danmörk, Ítalía og Austurríki leggja á borðið nýja sameiginlega sýn í útlendingamálum, sýn sem byggir á hugrekki, raunsæi og ábyrgð, þá kýs íslenska ríkisstjórnin að sitja hjá. Það kemur ekki á óvart. Það sem áður var mótuð stefna fyrri ríkisstjórnar er nú kynnt sem persónulegur árangur nýs ráðherra. En orð breyta ekki staðreyndum. Skortur á kjarki til að horfast í augu við raunveruleikann hefur leitt til stefnu sem er, eins og ríkisstjórnin, meira ímynd en innihald. Það er engin skýr stefna. Þetta er pólitísk sjálfsbjargarviðleitni í skjóli umræðunnar sem önnur ríki leiða. Því spyr ég hæstv. forsætisráðherra: Hvers vegna er Ísland ekki hluti af þessari yfirlýsingu leiðtoganna? Er það vegna þess að ríkisstjórnina skortir hugrekki, (Forseti hringir.) skortir sýn?