156. löggjafarþing — 51. fundur,  2. júní 2025.

endurmat túlkunar mannréttindasáttmála Evrópu.

[15:23]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Eigum við ekki bara að byrja á að klára þau mál sem við getum klárað áður en við förum í að segja okkur frá mannréttindasáttmálum? Ég bara spyr. Byrjum á því að klára þau mál sem eru t.d. í atkvæðagreiðslu í dag. Byrjum á að klára farþegaupplýsingar. Byrjum á að klára afturköllun um alþjóðlega vernd. Byrjum að klára mál sem ríkisstjórnin er einhuga um. Ríkisstjórnin er einhuga um greiningarmiðstöð á landamærunum, brottfararmiðstöð sem hefur komið í veg fyrir að við séum að geyma fólk í fangelsum hér á meðan það er að bíða eftir því að fara úr landi. Það eru næg verkefni og ég kalla bara til þingsins, komið með okkur í þau. Klárum þessi mál saman. Við þurfum ekki að byrja á því að segja okkur frá alþjóðlegum sáttmálum til að gera eitthvað í útlendingamálum hér á landi. Það er ekki vandamálið. Við skulum klára þessi mál. Gerum það saman. Næg eru verkefnin.