156. löggjafarþing — 51. fundur,  2. júní 2025.

viðbrögð stjórnvalda við tímabundinni lokun PCC á Bakka.

[15:24]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Eftir þetta síðasta svar hæstv. forsætisráðherra lá nú við að ég ákvæði að breyta um fyrirspurn, slíkir voru útúrsnúningarnir þegar því var haldið fram að hér hafi verið kallað eftir því að Ísland segði sig frá alþjóðamannréttindasáttmála. Það var eingöngu verið að benda á að önnur ríki hafa séð ástæðu til að taka þessi mál í sínar hendur, langt umfram það sem íslensk stjórnvöld hafa gert.

En málið sem ég ætla að spyrja um þolir enga bið og því held ég mig við það. Nú hafa 80 starfsmenn kísilvers PCC á Bakka fengið uppsagnarbréf. Þeir munu missa vinnuna eftir fáeinar vikur og framleiðslan mun stöðvast verði ekkert að gert. Þetta mun vera vegna þess að Kínverjar stunda það að dömpa eða sturta niðurgreiddum kísilmálmi á markaðinn. Nú er Ísland með fríverslunarsamning við Kína eins og þekkt er en sá samningur heimilar inngrip þegar verið er að sturta niðurgreiddri framleiðslu á markað annars ríkisins. Alþjóðaviðskiptasáttmálinn og Alþjóðaviðskiptastofnunin heimila einnig slík inngrip til að koma í veg fyrir slíkt. Kallað hefur verið eftir því að brugðist verði við þessu enda skiptir starfsemi kísilversins á Bakka byggðarlagið á Norðausturlandi og ekki hvað síst sveitarfélagið Norðurþing gríðarlegu máli, svo ekki sé minnst á starfsmenn þessa fyrirtækis. Þetta kallar á viðbrögð ríkisstjórnarinnar sem stóð hjá og horfði á einu alvörukornmyllu landsins lokað þrátt fyrir yfirlýsingar um aukna áherslu á kornrækt á Íslandi. Hvernig hyggst hæstv. forsætisráðherra, ríkisstjórnin, bregðast við þessu? Og ég er ekki að biðja um svar þess efnis að hæstv. fjármálaráðherra sé að velta þessu fyrir sér inni í sínu ráðuneyti. Það er öllum ljóst að ekki verður gripið til þeirra aðgerða sem þarf í þessu nema fyrir tilstilli hæstv. forsætisráðherra og hans samþykkis. (Forseti hringir.) Hvernig vill hæstv. forsætisráðherra bregðast við?